Use LEFT and RIGHT arrow keys to navigate between flashcards;
Use UP and DOWN arrow keys to flip the card;
H to show hint;
A reads text to speech;
35 Cards in this Set
- Front
- Back
Hvernig frumungar eru sveppir |
Geta verið einfrumungar eða fjölfrumungar |
|
Hvað hafa verið greindar margar tegundir sveppa á Íslandi |
Um 2.000 |
|
Hvernig eru sveppir ólikir plöntum |
Þeir eru öfrumbjarga og lifa rotlífi eða samlífi |
|
Hvað er utan á líkama fjölfrumusveppa |
Fastur veggur, óljós skil eru á milli frumna |
|
Hvernig fjölga sveppir sér |
Með gróum sem myndast í gróhirslum |
|
Hverjar eru helstu fylkingar sveppa |
Kólfsveppir, aksveppir, kyrtusveppir, oksveppir |
|
Dæmi um kólfsveppi |
Hattsveppir og gorkúlur |
|
Dæmi um asksveppi |
Gersveppir, penicillinsveppir, jarð-sveppur o.fl. |
|
Hvernig sveppir eru flestir ætisveppir |
Hattsveppir |
|
Hattsveppir |
1. Flestir ætisveppur 2. Hatturinn er æxlunarfæri 3. Gró myndast á neðra borði hattsins 4. Meginhluti sveppsins er neðanjarðar þar sem sveppþrædir vaxa og draga til sín næringu úr jarðveginum 5. Kólfsveppur |
|
Hvernig er melting sveppa frábrugðin meltingu manns |
Meltingarfærin eru eiginlega utan á sveppnum |
|
Sveppþræðir |
Gefa frá sér meltiensím, melta fæðu utan líkamans og taka næringuna til sín |
|
Furusveppur |
Dæmi um vinsælan ætisvepp á Íslandi, býr oftast í samlífi með furutrjám með því að mynda svepparót, gagnast báðum aðilum |
|
Merarostur |
Gorkúla (kólfsveppur) þegar hún er ung og hvít (þá notuð til átu) |
|
Gorkúla |
Merarostur breytist í gorkúlu þegar hún eldist og verður grænleit |
|
Kerlingareldur |
Gorkúla sem er gömul, þurr og full af gróum |
|
Þróun gorkúlu |
Merarostur (hvít) -> gorkúla (grænleit) -> kerlingareldur (þurr og full af gróum) |
|
Jarðsveppur |
1. Vinsæll ætisveppur 2. Asksveppur |
|
Berserkjasveppur |
Sveppur sem fólk neytir vegna vímuáhrifa en hann inniheldur eiturefni |
|
Ryðsveppur |
Herjar á víði og ösp |
|
Hvað eru minnstu sveppirnir |
Einfrumungar |
|
Hvað vega stærstu sveppirnir |
Tugi tonna |
|
Jötungíma |
Belgsveppur og stærsti sveppur á Íslandi, hefur mælst 70 cm í þvermáli |
|
Hvað eru fléttur |
Margbrotin sambýli |
|
Hver er fyrirferðamesti hluti fléttu |
Sveppur, heldur sambýlinu saman, sér um húsnæðið |
|
Grænþörungar |
Útvegar fæðu fléttu med ljóstillífun |
|
Hver er stundum 3. aðili fléttu |
Ljóstillífandi bakteríur sem sjá um fæðuframleiðslu |
|
Hvernig græða ljóstillífunarverur á sambýli við sveppi |
Sveppur dregur til sín raka úr loftinu sem ljóstillífunarverurnar gætu ekki verið án |
|
Skófir |
Hrúðar- eða blaðkenndar fléttur sem vaxa á steinum |
|
Á hverju var varla gerður greinarmunur á ádur fyrr |
Fléttum og mosa |
|
Hvað er hreindýramosi og litunarmosi |
Fléttur |
|
Hvað eru fjallagrös |
Fléttur |
|
Hvernig nýtist hreindýramosi dýrum |
Fæða hreindýra að vetri |
|
Hvernig nýtast fjallagrös mönnum |
Voru notud til matar- og lyfjagerðar, nú eru ýmsar heilsuvörur framleiddar úr fjallagrösum |
|
Hvernig nýttist litunarmosi |
Litur var unnin úr honum til að lita fataefnið |